Jæja mig langaði bara svona að koma því að.... að ég er að fara til
Stockhólm city eftir um það bil hálfan sólahring...
víiihúuuu......
Ég og Kolla mín Vaka ákváðum þetta fyrir stuttu og ætlum að skella
okkur í stelpuferð bara tvær.... fundum meira að segja tilefni.....
Hún í útskriftarferð og ég í innskriftarferð..... sniðugar.... ???'
Já maður á alltaf að finna sér tilefni...
En ég er nú ekki einu sinni byrjuð að pakka og á eftir að þvo fullt
og svona... ég er einhvernveginn bara ekkert að stressa mig....
enda verður þetta sko mjög afslöppuð ferð hjá okkur stöllum...
engin sérstakur eltingarleikur við neinar búðir eða
atburði...Kannski smá við sænsku strákana... þeir eru svo asskoti
smukk..... DJókkk!!!
Auðvitað er enginn eins fallegur og frábært eins og minn eini sanni
kæró...... !!!! (fannst ég knúin til að segja þetta eftir þetta
komment hjá mér
En allavega þá er besta að fara að drífa sig að fara að gera
eitthvað....
hey gleymdi að segja að ég var að kaupa mér nýja saumavél...svona
rúuusalega overlock græju... algjör snilld... og nú er enn ein
saumamaníanbyrjuð.... hummm hvaðan ætli ég hafi þessar maniur
mínar??? eins og foreldrar mínir báðir eru nú einstaklega stabílt
og jarðbundið fólk ......hí´hihíhhí....
Svo er nú stefnan að fara að uppfæra þessa blessuðu myndasíðu
mína..... hún er nú alveg að fara að mygla greysið litla......
skellin nokkrum glóðvolgum frá Sverge...
hey ein stórfrétt sem ég er að gleyma að segja..... Hún elsku besta
Katrin mín var að eignast stelpuling í gær.... TIL hamingju elsku
bestu.... svo að maður hefur nóg að gera í
eggjastokkaklingheimsóknum í sumar skal ég segja
ykkur........
Jæja bless í bili... og skemmti ég mér rosalega vel í Stockhólm....
Verð nú að segja að ég á eftir að hugsa til ykkar köbensystra.....
Þóru Silju og Kötu.... Kannski að gamla slái sér á lær til heiðurs
ykkur eitt kveldið.....